Um okkur
Við erum fjögurra manna fjölskylda frá Íslandi, búsett síðan 2006 í Leicester Forest East í mið-Englandi (sjá Google Maps fyrir neðan). Meginástæða þess að við lögðumst í víking er sú að Mummi er í doktorsnámi við University of Leicester. Dagbjört er í grunnskóla auðvitað og Ísak á leikskóla, sama leikskóla og Lýdía vinnur á í hlutavinnu. Erum ekkert á leið heim strax og reiknum með að vera hér 3-4 ár í viðbót hið minnsta.
Sendið okkur skilaboð á þessari síðu, með því að skrifa í gestabókina, eða með því að skrifa athugasemdir við einhverjar af síðunum okkar.






























