Myndir
Við erum í miðjum klíðum með að færa myndasafnið okkar af þessum síðum yfir á Flickr myndaþjónustuna og bæta við það all rækilega. Svona ætlum við að hafa þetta:
- Við munum blogga öðru hverju á þessum síðum og tilkynna um nýja skammta af myndum sem við höfum bætt inn á Flickr (t.d sumar 2009). Þið getið því kíkt öðru hverju hingað til að fá fréttir, eða haft það tæknilegra og gerst áskrifendur að RSS-veitu fyrir i) nýtt efni eða ii) athugasemdir á efni (eða bæði).
- Aðalsíðan okkar á Flickr, eða "myndastraumurinn" eins og þeir kalla það er hér: http://www.flickr.com/photos/mummi-og-lydia/. Þessi síða sýnir nýjustu myndir og myndasöfn, svo þið getið líka kíkt þangað (eða notað RSS-veituna) til að sjá myndir í belg og biðu.
- Fyrir þá sem eru ekki mjög kunnugir Flickr: helstu undirsíður eru myndasöfn (e. sets, sama og albúm eða möppur) sem allir ættu að kannast við, og svo lykilorð, eða merki (e. tags) þar sem hægt er að finna auðveldlega allar myndir merktar með t.d. "Ísak" eða "piparkökur"
Látið okkur endilega vita (tölvupóst eða athugasemd á síðuna) ef eitthvað er enn óljóst varðandi þetta nýja fyrirkomulag.































