Dagbjört fer í sund

Þá er hún Dagbjört okkar komin aftur heim frá Íslandi eftir 3ja vikna dvöl. Ég held ég láti hana um að púsla saman smá ferðasögu og setja á bloggið sitt. Núna ætla ég hinsvegar að segja nokkur orð um sundferðina hennar með Evu frænku.

 

Stelpurófan fór auðvitað margoft í sund með vinkonum sínum og fleirum þessar 3 vikur. En síðasta daginn á Íslandi skaust skottan í síðustu sundferðina með Evu Þórdísi frænku sem vildi kíkja á hana og meta hana "sundlega" séð, sérstaklega af því að hún hefur lítið sem ekkert farið í sund hér í Englandi fyrir utan 1x í viku í skólasund. Eva er náttúrulega sundgarpur mikill og sundþjálfari, svo ef einhver getur sagt dóttur minni til ofan í lauginni þá er það hún! 

 

En vindum okkur í þetta. Hér er tilvitnun í Evu Þórdísi frá netspjalli um helgina (með hennar leyfi auðvitað!):

Skrifleg sundskýrsla hefst núna:

Hún kann tökin í bak, bringu og skrið ágætlega og er í raun flugsynd, hún er greinilega að fá mjög góða kennslu úti þó hún komist kannski ekki eins oft í sund og jafaldrarnir hérna heima. [..] fínpússning á sundaðferðunum er framundan en ekki að læra að synda, kafa eða fljóta.

Ef þú hefur kost á því þá mundi ég bjóða henni að prufa að æfa sund því hún dundaði sér útí djúpu við að kafa og stökkva af pallinum (öruggari en allt) í örugglega 40 min og ef það er ekki eiginleiki sem sundfólk þarf að hafa þá veit ég ekki hvað... að njóta sín einn í vatninu.

[..] 

Það sem gerir það líka að verkum að mér finnst að það ætti allavega að bjóða henni sundæfingar (ef það er hægt) er að ég spurði hana hvort hún kinni að gera kollhnís í vatninu og hún svarði um hæl "nei, en þegar fólk er á Ólympíuleikum þarf það að gera svona kollhnís í bakkanum!" ég veit ekki um neinn krakka á hennar aldri sem veit þetta, þannig að ég tók eina veltu fyrir hana (the olympic style). 

[..]

og svo fórum við að koma henn í nokkra kollhnísa, þegar ég var svo flúin í heitari laug og var að fylgjast með henni sá ég hana gera mjög svo góða og ágætlega hepnaða tilraun til að synda nokkur skriðsundtök að bakkanum og taka veltu!!!!!!!

Þannig að niðurstaðan er að hún er vel synd, fljót að læra og tileinka sér hreyfingar í vatninu, örugg [..] og nýtur sín í vatninu. Auka sundnámskeið er henni klárlega til framdráttar og ég held að það sé alveg málið að hvetja hana áfram í sundi bæði með þér og án þín, sundæfingar ef þær eru möguleiki og hún hefur áhuga, ekki spurning.

Stúlkan okkar er sumsagt alger snillingur og kannski efni í sundstjörnu, hver veit! Ég ætla að spyrja hana hvort hún vilji koma að synda með mér einu sinni í viku eða svo. Mig vantar alveg þessa spes þjálfun sem ég fékk úr sundinu heima á Íslandi (2-3x í viku) því ekki höfum við farið í sund hér í Englandi nema örsjaldan. Aðstaðan hér er sæmileg (nema á svona stöðum!) en þetta er bara ekki það sama og útilaugarnar heima á Íslandi... 

answer this topic

In the not easy way to the academic success guys should buy thesis topic connecting with this good post in the thesis service or dissertation service.

Syndicate content Syndicate content