Heldur subbuleg sundferð í Leicester - af hverju mig langar heim til Íslands í sund!!

Við fórum með krakkana í sund um síðustu helgi, nokkuð sem við gerum frekar sjaldan hér í Englandi (það verður morgunljóst fyrir neðan af hverju það er). Staðurinn var  Beumont Leys Leisure Centre, staður sem ég hélt fyrst að væri með leiklaugar OG laugar til að synda í, en er svo eftir allt saman bara til að leika sér í. Ókei, allt í lagi með það, Pabbi gamli fær þá ekki að synda í dag :( man að athuga sundaðstöðuna betur næst!

En það sem var nú helst pínlegt við þessa ferð tengist hreinlæti sem við skulum skoða nánar. Í fyrsta lagi er gengið inn á útiskóm alla leið inn í búningsklefa, eins og annars staðar sem við höfum farið í sund hér í landi, sem ljóslega hefur í för með sér býsna drullug gólf sem er ekki geðslegt að labba á berfættur.

Í annan stað lagi þvær fólk sér almennt ekki eins og við erum vön að heiman heldur laumast menn í sundföt (eða koma í þeim, þokkaLEGA spéhræddir þessi Bretar!! ) og skola sig aðeins (yfirleitt) á leið ofan í laug. Það er lítð og aumingjalegt skilti á vegg þarna þar sem fólk er beðið vinsamlega að þvo sér. En engir baðverðir eða neitt til að fylgjast með hreinlæti fólks (eða aðstöðu heldur, a.m.k. ekki svo ég hafi tekið eftir). Ókei, þeir setja meiri klór í laugina, problem solved. Maður þolir þetta endrum og eins.

En mér fannst taka steininn úr að aðstaðan á þessum tiltekna stað virðist frekar úr sér gengin á margan hátt, og þennan daginn var nefnilega heita vatnið bilað svo sturturnar voru sumsagt *kaldar*. Lauginni var ekkert lokað vegna bilunar, nehei, sem þýðir auðvitað að ENGINN skolaði sig áður en þeir fóru ofan í þennan daginn. Og það var fullt af fólki þarna á þessum laugardegi. Og ekki gat maður baðað sig þegar maður kom upp úr.

Ég og Lýdía erum sammála um að hárið á okkur var óhreinna eftir þessa sundferð en fyrir hana. Maður þurfti að fara í sturtu heima sérstaklega á eftir til að þvo skítinn (tek fram: annarra manna skít!) af sér. Subbulegt? Heldur betur. Minns er svo innilega farinn að hlakka til að komast í sund heima á Íslandi í júní. Á hverjum degi!

Syndicate content Syndicate content