Guðmundur Árni Þórisson's blog

Örstutt jólakveðja frá Leicester, Englandi

P1000378

Originally uploaded by Mummi og Lýdía

Gleðileg jól öll sömul!

Hér eru örfá orð frá okkur fjölskyldunni. Við höfðum það hefðbundið á aðfangadagskvöld eins og venjulega, fjögur saman í húsinu okkar í Birchwood Close með reykt svínakjöt og hrísgrjónabúðing í eftirmat. Eftir allt pakkastandið eftir mat fóru menn örþreyttir en ánægðir í rúmið.

Ég og Lýdía ætlum að púsla saman almennilegum jólapistli yfir hátíðarnar og setja á bloggið okkar, ásamt fleiri myndum. Látum þetta í duga í bili.

Fleiri jólamyndir: http://www.flickr.com/photos/mummi-og-lydia/sets/72157622943176417/

Prúðuleikararnir taka Bohemian Rhapsody / Muppets take Bohemian Rhapsody

Sá þetta hjá snillingnum Snorra áðan. Prúðuleikararnir eru notlega flottastir. Fullt af efni með þeim hjá MuppetsStudio á Youtube.

Hmm. Reyndar man ég allt í einu að ég á einhvern helling af gömlum Prúðuleikaraþáttum sem ég náði í á (hóst) Torrent í fyrra, en hef ekki komist í að horfa á. 

http://www.youtube.com/watch?v=tgbNymZ7vqY

Hook Line and Sunk - heimildarmynd / documentary from Journeyman

Mæli með þessari heimildarmynd frá http://www.Journeyman.tv 

http://www.youtube.com/watch?v=r7InlN2x08Q

"September 2009 Dubbed the 'New Vikings', Iceland's bankers had  taken the world by storm. But a year ago their banks collapsed   overnight, leaving the country to face economic chaos. Have the  lessons been learned?.."

Það er fullt af fleira áhugaverðum heimildarmyndum á http://www.Journeyman.tv 

Google þýðingar: "Ég er hoppandi kátur" => "Holy shit, I am gay" . Eða hvað?

Rakst á þessi skemmtilegheit á fréttavef Moggans:

http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2009/09/06/ruddalegt_ad_vera_hoppandi/

Google.com býður fólki að þýða texta úr einu tungumáli á annað. Slíkar þýðingar ber að taka með miklum fyrirvara. Það er augljóslega rétt, sem haft var eftir Þorbirni Broddasyni prófessor fyrr í vikunni, að seint kæmi gullaldartexti úr slíkum þýðingum.

Maður nokkur, sem sló inn setninguna „Ég er hoppandi kátur“ varð heldur en ekki undrandi þegar enska þýðingin reyndist vera „Holy shit, I am gay“ (Fjandinn sjálfur, ég er samkynhneigður).

[...]

En ef fréttamaður var ekki að kríta liðugt hérna þá eru íslenskir útsendarar Google búnir að laga þetta núna. Þessar þýðingar komu nokkuð skynsamlega út þegar ég prófaði sjálfur: 

http://translate.google.com/translate_t?text=Ég+er+hoppandi+kátur&sl=is&tl=en

http://translate.google.com/translate_t?text=Þetta+er+hoppandi+kanína&sl=is&tl=en

 

John Scalzi's Guide to the Most Epic FAILs in Star Wars Design

Hér er snilldar gagnrýni á alls kyns hönnunaratriði í Star Wars myndum sem eru kjánaleg, allt frá geislasverðunum (engin skjöldur fyrir hendurnar) yfir í Dauðastjörnuna sjálfa:

http://blogs.amctv.com/scifi-scanner/2009/08/bad-designs-in-star-wars.php

[..]

Death Star

An unshielded exhaust port leading directly to the central reactor? Really? And when you rebuild it, your solution to this problem is four paths into the central core so large that you can literally fly a spaceship through them? Brilliant. Note to the Emperor: Someone on your Death Star design staff is in the pay of Rebel forces. Oh, right, you can't get the memo because someone threw you down a huge exposed shaft in your Death Star throne room.

Bad design in Star Wars is not just limited to stuff; evolution here seems wacky, too. Three choice bits:

Sarlaac

A monstrous yet immobile creature who lives in an exposed pit in the middle of a lifeless desert, waiting for large animals to apparently feel suicidal and trek out to throw themselves in? Yeah, not so much. Not every Sarlaac can count on an intergalactic mob boss to feed it tidbits.

[..]

Höfundur þessarar færslu er John Scalzi, gaurninn á bak við hinar stórskemmtilegu Old Man's War bækur, harðsoðin geim/stríðs/framtíðarhasar sem ég mæli hjartanlega með:

With his wife dead and buried, and life nearly over at 75, John Perry takes the only logical course of action left him: he joins the army. Now better known as the Colonial Defense Force (CDF), Perry's service-of-choice has extended its reach into interstellar space to pave the way for human colonization of other planets while fending off marauding aliens. The CDF has a trick up its sleeve that makes enlistment especially enticing for seniors: the promise of restoring youth. After bonding with a group of fellow recruits who dub their clique the Old Farts, Perry finds himself in a new body crafted from his original DNA and upgraded for battle, including fast-clotting "smartblood" and a brain-implanted personal computer. All too quickly the Old Farts are separated, and Perry fights for his life on various alien-infested battlegrounds. 

Dagbjört fer í sund

Þá er hún Dagbjört okkar komin aftur heim frá Íslandi eftir 3ja vikna dvöl. Ég held ég láti hana um að púsla saman smá ferðasögu og setja á bloggið sitt. Núna ætla ég hinsvegar að segja nokkur orð um sundferðina hennar með Evu frænku.

 

Stelpurófan fór auðvitað margoft í sund með vinkonum sínum og fleirum þessar 3 vikur. En síðasta daginn á Íslandi skaust skottan í síðustu sundferðina með Evu Þórdísi frænku sem vildi kíkja á hana og meta hana "sundlega" séð, sérstaklega af því að hún hefur lítið sem ekkert farið í sund hér í Englandi fyrir utan 1x í viku í skólasund. Eva er náttúrulega sundgarpur mikill og sundþjálfari, svo ef einhver getur sagt dóttur minni til ofan í lauginni þá er það hún! 

 

En vindum okkur í þetta. Hér er tilvitnun í Evu Þórdísi frá netspjalli um helgina (með hennar leyfi auðvitað!):

Skrifleg sundskýrsla hefst núna:

Hún kann tökin í bak, bringu og skrið ágætlega og er í raun flugsynd, hún er greinilega að fá mjög góða kennslu úti þó hún komist kannski ekki eins oft í sund og jafaldrarnir hérna heima. [..] fínpússning á sundaðferðunum er framundan en ekki að læra að synda, kafa eða fljóta.

Ef þú hefur kost á því þá mundi ég bjóða henni að prufa að æfa sund því hún dundaði sér útí djúpu við að kafa og stökkva af pallinum (öruggari en allt) í örugglega 40 min og ef það er ekki eiginleiki sem sundfólk þarf að hafa þá veit ég ekki hvað... að njóta sín einn í vatninu.

[..] 

Það sem gerir það líka að verkum að mér finnst að það ætti allavega að bjóða henni sundæfingar (ef það er hægt) er að ég spurði hana hvort hún kinni að gera kollhnís í vatninu og hún svarði um hæl "nei, en þegar fólk er á Ólympíuleikum þarf það að gera svona kollhnís í bakkanum!" ég veit ekki um neinn krakka á hennar aldri sem veit þetta, þannig að ég tók eina veltu fyrir hana (the olympic style). 

[..]

og svo fórum við að koma henn í nokkra kollhnísa, þegar ég var svo flúin í heitari laug og var að fylgjast með henni sá ég hana gera mjög svo góða og ágætlega hepnaða tilraun til að synda nokkur skriðsundtök að bakkanum og taka veltu!!!!!!!

Þannig að niðurstaðan er að hún er vel synd, fljót að læra og tileinka sér hreyfingar í vatninu, örugg [..] og nýtur sín í vatninu. Auka sundnámskeið er henni klárlega til framdráttar og ég held að það sé alveg málið að hvetja hana áfram í sundi bæði með þér og án þín, sundæfingar ef þær eru möguleiki og hún hefur áhuga, ekki spurning.

Stúlkan okkar er sumsagt alger snillingur og kannski efni í sundstjörnu, hver veit! Ég ætla að spyrja hana hvort hún vilji koma að synda með mér einu sinni í viku eða svo. Mig vantar alveg þessa spes þjálfun sem ég fékk úr sundinu heima á Íslandi (2-3x í viku) því ekki höfum við farið í sund hér í Englandi nema örsjaldan. Aðstaðan hér er sæmileg (nema á svona stöðum!) en þetta er bara ekki það sama og útilaugarnar heima á Íslandi... 

Vinir okkar Karíus og Baktus á Wikipedia + Youtube

Íslendingar ættu að kannast við þessa litlu náunga:

http://en.wikipedia.org/wiki/Karius_and_Bactus

nú einnig á Youtube:

http://www.youtube.com/watch?v=VOJo73IGpfE


Engineering Student Takes On Electrical Door, Loses

http://reflectionof.me/engineering-student-takes-on-electrical-door-0

According to the the description, the man in this video is an engineering student in Pakistan.This is kind of like that, only dumber. Why he was trying to bull rush the door is anyone's guess, but for the sake of mankind I can only hope this guy doesn't graduate.


 

<!-- break -->

Stólpagrín gert að Dönum og dönskunni (Youtube myndband)

Stebbi félagi sem er búsettur í Danaveldi með konu og barni benti mér á þessa snilld hér. Þetta er myndband með einhverjum norskum grínurum sem gera grín að Dönum frændum vorum. Búðarmaður nokkur og viðskiptavinur eiga samtal sín á milli á dönsku, en þeir skilja eiginlega ekki hvorn annan og viðskiptin enda í vitleysu:

http://www.youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk

Hitabylgjubusl á heitum sumardegi í Englandi

IMG_9763

Originally uploaded by Mummi og Lýdía

Það var um 30 stiga hiti á Leicestersvæðinu í dag. Það þýddi því ekkert annað en að fylla buslulaugina í garðinum til að kæla gengið niður! Hér eru nokkrar myndir frá buslinu:

http://www.flickr.com/photos/35959749@N08/sets/72157620633390375/

Nokkrar myndir frá Londonferð

IMG_9433

Originally uploaded by Mummi og Lýdía

Nokkrar myndir frá Londonferð í síðasta mánuði, sjá meira um það í þessari bloggfærslu

http://www.flickr.com/photos/35959749@N08/sets/72157619452406424/

Atkvæðin okkar komust til skila til Íslands eftir allt saman!

 

Við fjölskyldan lögðum land undir fót helgina fyrir kosningar og keyrðum til London. Aðalerindið var að fara í íslenska sendiráðið til að kjósa. Sem við og gerðum, og fórum svo á Natural History Museum í nokkra tíma á eftir sem var býsna gaman.

 

Það skringilega var þó að eftir að við höfðum kosið þá fengum við miðann í hendur, stimpil og undirskrift frá fulltrúa o.s.fr., og svo þurftum við að koma atkvæðunum okkar í póst sjálf! Ég spurði manneskjuna reyndar um þetta fyrirkomulag, og skildist á henni að þetta hafi verið gert svona í fleiri áratugi. 

 

En hvað um það, skv. rakningarkerfi (e. tracking system) á http://www.postoffice.co.uk komust atkvæðin okkar til skila til Íslands föstudaginn fyrir kosningahelgina. Það lítur því út fyrir að fyrirhöfnin við að kjósa hafi ekki verið til einskis, og stuðningur okkar við nýju ríkisstjórnina hafi verið talinn með (segi ekkert hvaða flokkur var kosinn!).


 

Heldur subbuleg sundferð í Leicester - af hverju mig langar heim til Íslands í sund!!

Við fórum með krakkana í sund um síðustu helgi, nokkuð sem við gerum frekar sjaldan hér í Englandi (það verður morgunljóst fyrir neðan af hverju það er). Staðurinn var  Beumont Leys Leisure Centre, staður sem ég hélt fyrst að væri með leiklaugar OG laugar til að synda í, en er svo eftir allt saman bara til að leika sér í. Ókei, allt í lagi með það, Pabbi gamli fær þá ekki að synda í dag :( man að athuga sundaðstöðuna betur næst!

En það sem var nú helst pínlegt við þessa ferð tengist hreinlæti sem við skulum skoða nánar. Í fyrsta lagi er gengið inn á útiskóm alla leið inn í búningsklefa, eins og annars staðar sem við höfum farið í sund hér í landi, sem ljóslega hefur í för með sér býsna drullug gólf sem er ekki geðslegt að labba á berfættur.

Í annan stað lagi þvær fólk sér almennt ekki eins og við erum vön að heiman heldur laumast menn í sundföt (eða koma í þeim, þokkaLEGA spéhræddir þessi Bretar!! ) og skola sig aðeins (yfirleitt) á leið ofan í laug. Það er lítð og aumingjalegt skilti á vegg þarna þar sem fólk er beðið vinsamlega að þvo sér. En engir baðverðir eða neitt til að fylgjast með hreinlæti fólks (eða aðstöðu heldur, a.m.k. ekki svo ég hafi tekið eftir). Ókei, þeir setja meiri klór í laugina, problem solved. Maður þolir þetta endrum og eins.

En mér fannst taka steininn úr að aðstaðan á þessum tiltekna stað virðist frekar úr sér gengin á margan hátt, og þennan daginn var nefnilega heita vatnið bilað svo sturturnar voru sumsagt *kaldar*. Lauginni var ekkert lokað vegna bilunar, nehei, sem þýðir auðvitað að ENGINN skolaði sig áður en þeir fóru ofan í þennan daginn. Og það var fullt af fólki þarna á þessum laugardegi. Og ekki gat maður baðað sig þegar maður kom upp úr.

Ég og Lýdía erum sammála um að hárið á okkur var óhreinna eftir þessa sundferð en fyrir hana. Maður þurfti að fara í sturtu heima sérstaklega á eftir til að þvo skítinn (tek fram: annarra manna skít!) af sér. Subbulegt? Heldur betur. Minns er svo innilega farinn að hlakka til að komast í sund heima á Íslandi í júní. Á hverjum degi!

Á Youtube - Shii, Wii leikjatölvan fyrir konur.

http://www.youtube.com/watch?v=_SXNAtwYMBw

Þessi ræma á Youtube er góð. Shii er Wii-leikjatölva sérstaklega hönnuð fyrir konur:

Fljúgandi mörgæsir sem aprílgabb í fyrra

Ég er ári á eftir með þetta, en hvað um það, hér er ein mesta snilld sem ég hef séð lengi á Youtube: auglýsing á BBC fyrir heimildarmynd um fljúgandi mörgæsir. Eins og flestir vita eru mörgæsir ekki fleygar, enda er þetta aprílgabb BBC á síðasta ári! Sjáið Youtube-gluggann fyrir neðan, eða http://www.youtube.com/watch?v=l02zAOylWu4 ef glugginn sést ekki:

Snjór í Leicester í byrjun febrúar



IMG_9313

Originally uploaded by Mummi og Lýdía

Nokkrar nýjar myndir í þessu albúmi. Þetta er allur snjórinn sem kom þennan veturinn, í byrjun febrúar. Greyið Bretarnir fóru alveg í steik út af ófærð, margir skólar lokuðu og ég veit ekki hvað.
Það rann á Lýdíu snjó-æði og hún rauk til að kaupa vígalegan skíðasleða á Netinu (ekki bara handa krökkunum sko, uhm...!)
En svo bráðnaði snjórinn eftir örfáa daga og kemur ekki aftur úr þessu (skrifaði í mars). Téður sleði nýttist í eina ferð í skólann og til baka, og situr nú í bílskúrnum þar til næsta vetur.

Jólamyndir komnar inn (betra er seint en aldrei)

IMG_9248

Originally uploaded by Mummi og Lýdía

Maður er sona smá saman að bæta myndum inn í Flickr strauminn okkar, síðasti skammtur er frá jólunum síðastliðnu. Myndasafnið eða albúmið í Flickr er hérna.

Myndir frá ljósmyndastofu komnar í myndasafnið

Hallú. Alltaf erum við jafn dugleg að bæta við efni, eða þannig! Hvað um það, ég var loksins að koma því í verk að skanna inn myndirnar frá ljósmyndastofu í Leicester sem við fórum til í sumar, smellið á myndina fyrir neðan til að sjá þær á Flickr:

img131img134img137img138

Ég nefni ekki stofuna á nafn ef þeir skyldu "googla" okkur og komast að því að við höfum tekið afrit af myndunum ólöglega (ónei, ónei!). Nei, í alvöru, mér finnst þetta alltaf jafn asnalegt, en svona stofur hafa yfirleitt höfundarrétt á myndum sem maður er þó að ráða þá til að taka af manni sjálfum! Maður er svo píndur til að kaupa útprentanir af þeim á uppsprengdu verði og hefur enga (löglega) leið til að t.d. senda vinum og ættingjum eintak í tölvupósti, eða á vefsíður eins og margir gera. Í stuttu máli, þessi fornfálegu vinnubrögð ljósmyndara passa ekki við hvernig fólk notar ljósmyndir í netvæddum nútímanum. Til dæmis hefðum við viljað eiga a.mk. 15 af myndunum frá þessari stofu, en við höfum engan veginn efni á að kaupa þær allar :(

Eina undantekningin sem ég veit um er Brosbörn í Hafnarfirði sem við fórum til einu sinni til.

Ögn meiri fréttir frá Íslandsferð M, D og Í

(Sjá fyrri færslu hérna)

Hér eru nokkrar myndir í viðbót frá síðustu 2x dögum. Ég náði í Kristínu og Ísak til langömmu og við þrjú hittum Afa Þóri yfir kaffi niðri á Laugaveginum. Þau feðgin voru svo kvödd og þau lögðu í hann norður til Akureyrar:

IMG_8943

Seinnipartinn skelltum við fegar okkur í sund með Mána og Dröfn og stelpunum þeirra. Eftir það var etið spakk og haghetti hjá þeim, og svo náðum við Ísak í Ásu og Þóri á flugvöllinn, en þau höfðu verið á Akureyri síðustu daga. Dagurinn í dag hefur svo farið í að dútla heima með Ásu og Þóri í síbatnandi veðri, svo góðu í restina að guttarnir tveir fengu að busla í sundlaug á sólpallinum!

IMG_8974

...framhald í næsta þætti...

Stutt skýrsla + nokkrar myndir frá Íslandsheimsókn M, D & Í.

Hér er smá pistill frá Íslandsheimsókn minni og krakkanna. Við komum úr sumarhitum á Englandi sl. miðvikudag og lentum beint í sumarhitum á Íslandi, ótrúlegt en satt! Hitamet voru slegin hægri og vinstri þessa fyrstu 3 daga okkar á landinu, svo a.m.k. mér fannst nóg um og vil gjarnan fá svalara veður :! aldrei er maður ánægður: ef það er ekki of kalt þá er of heitt!

En hvað um það, burtséð frá veðurfari þá er allt gott að frétta hingað til. Flugið frá Stansted til Keflavíkur gekk vel, enda var Mamma búin að pakka vel hinu og þessu dóti fyrir krakkana sem var dundað sér við á leiðinni (sjá mynd).

IMG_8887

Vigdís frænka sótti okkar á völlinn og við heimsóttum löngu Ömmu (s.s. Ömmu Kristínu) strax fyrsta daginn. Fórum svo til Sigga í Laugarásveginum sem var einn heima (Ása og Þórir eru á Akureyri). Við gistum þar öll fyrstu nóttina, en strax daginn var farið í sund, og síðan var Dagbjört sett "í fóstur" hjá Ingu vinkonu sinni, og þar er hún enn (skrifað aðfaranótt sunnudags). Við Ísak höfum síðan verið á flakki hingað og þangað, farið í sund með Mána og fjölskyldu, labbað á Esjuna með Loga (sjá mynd), kíkt til Evu og Alexar í mat, og svo í dag hitt Afa Þóri og Kristínu Ásu og farið í lambalæri/hrygg til Ömmu Kristínar.

IMG_8894

Staðan núna er sú að Ísak varð barasta eftir hjá Kristín-unu tveimur (K. Ásu og langömmu) og gistir þar í nótt ásamt pöndunni sinni.

Látum þetta nægja frá Íslandi í bili. Skrifa meira síðar.

Djísus kræst mar. Heimasíður loksins komnar upp aftur, biðjumst afsökunar á truflun á þjónustu

Klúður hjá Herra Mumma. Heimasíðurnar hættu að virka fyrir helgi og ég hafði svo mikið að gera þá vikuna við að klára vefsíður í skólanum að ég náði ekki að laga þetta. Komst svo að því núna áðan að þetta var ofureinfalt að laga eftir allt saman: lénið www.mummi-og-lydia.net var bara að vísa á vitlausan stað. En, allavega, kerfið sumsagt komið í lag aftur.

Helstu fréttir eru þær að aið fórum í útilegu um helgina til Snettisham í Norfolk-sýslu á vesturströnd Englands. Skellum upp ferðasögu plús myndum fljótlega, fyrst síðurnar eru farnar að virka!

Jarðskjálfi í Englandi! 5.3 á Richter

Púff. Rosalega brá okkur Lýdíu rétt fyrir 1 í gærnótt. Við vorum rækilega sofandi þegar eitt stykki jarðskjálfti reið yfir og hristi húsið duglega! Ég vissi ekki betur en við værum á jarðfræðilega stöðugu svæði, samanborið við Ísland, svo það fyrsta sem mér flaug í hug var að annaðhvort væri þetta hitunarkerfið að fara alveg í steik (koma stundum skellir frá hitatankinum) eða óþyrmilega aðgangsharður innbrotsþjófur. Lýdía sofnaði fljótlega aftur en það tók mig góða þrjá tíma að komast endanlega í ró. Krakkagrislingarnir rumskuðu hinsvegar ekki!

Fréttasíða BBC segir að svona skjálftar komi á 10-20 ára fresti á Bretlandseyjum, og að þetta sé sá öflugasti í ein 25 ár.

Hlýnun jarðar og "Óþægilegur Sannleikur" með Al Gore

Ég og Lýdía vorum að horfa á heimildar/áróðursmyndina An Inconvenient Truth (IMDB) sem við fengum gegnum bréfalúguna hjá vinum okkar Lovefilm.. Al Gore (Wikipedia) er hinn vænsti karl og ég er farinn að bera all nokkra virðingu fyrir manninum, jafnvel þó hann sé amerískur stjórnmálamaður!

Myndin er mun merkilegri og vandaðri umfjöllun en ég hafði haldið og virkilega vekur mann til umhugsunar um hvernig við höfum farið með jörðina okkar og í hvað stefnir. Ég held ég skjótist út í búð og kaupi fleiri sparperur! PS við erum þegar á býsna umhverfisvænum bíl með díselvél

Kíkið á climatecrisis.net til að kynna ykkur málið frekar, tja eða bara leigja myndina (eða ná í gegnum Torrent, t.d. á mininova.net).

Þorláksmessukaffi í Englandi í anda "Ljósavatnsklansins" (eins og Siggi kallar ættina)

Jæja gott fólk. Eins og á síðasta ári vorum við vant við látin á Þorláksmessu og komumst ekki í jólakakó hjá Sigga & Ásu. Ástæðan er náttúrulega sú að við erum hér í Englandi um jólin.

Ömurlegustu augnablik í vísindaskáldskapar-geiranum (http://www.somethingawful.com)

Ég var að lesa snilldar-blogg um ömurlegustu augnablikí vísindaskáldskapar-geiranum (e. science fiction, eða sci-fi). somethingawful.com er með topp-22 lista hér.

Ég á LinkedIn

Ég setti nýverið inn upplýsingar um sjálfan mig á LinkedIn. Prófílinn minn er nokkurn veginn jafngildi ferilskrár (Curriculum Vitae), en maður getur líka byggt upp net af fólki sem maður tengist á ýmsan hátt (t.d. samstarfsmenn núverandi eða fyrrverandi). Smellið á myndina fyrir neðan ef þið viljið kíkja á mína síðu:

Ferð á Villa Park, til að sjá Aston Villa vs Everton

Bjössi félagi kom í heimsókn nýlega á leið sinni frá Þýskalandi heim til Íslands. Ásamt því að liggja í leti hjá Hótel Mumma&Lýdíu og láta stjana við sig í nokkra daga (!) fórum við (í boða Mr. Bjössa) loksins á Rauðu Kúna (e. Red Cow)sem er veitingastaður rétt hjá okkur, að versla í borginni, í bíó og fleira.

Komin aftur, komin aftur!!

Púff. Loksins eru síðurnar okkar komnar upp aftur! Við komum nefnilega að símalínunni dauðri þegar við snerum aftur úr Íslandsferð í síðustu viku. Ef línan er dauð þá er nettengingin dauð, og ef nettengingin er dauð þá eru vefsíðurnar niðri :( Þær eru nefnilega hýstar á litla Makkanum okkar í stofunni. Það tók svo fleiri daga að ná af viðgerðarmanni hjá símafyrirtækinu og ná þessu í lag (helgi á milli reyndar).

Stuð á krökkum í Bumpi´s playhouse á 17. júní

Við ætluðum að skjótast kannske í smá lautarferð í dag, til að gera okkur dagamun á 17. júní, þjóðhátíðardaginn sjálfan. Veðrið var mjög gott í dag, en þar sem Lýdía var ennþá slöpp eftir veikindi síðustu daga fórum við ekki langt, og ekki út heldur: skelltum okkur í Bumpi's Big Adventure. Þetta er svona leikkastali eða völundarhús, risastórt batterí þar sem er hægt að halda barnafmæli (svipað og Ævintýraland í Kringlunni). En það er líka hægt að koma bara sjálfur og leyfa krökkunum að fá smá útrás.

Skutlast frá Englandi til Danmerkur yfir helgi: Leicester til Horsens

Nú eru aðeins örfáir dagar þar til við fjölskyldan rúllum af stað frá Leicester til Stansted-flugvallar, og þaðan í flugvél til Árósa í Danmörku. Þannig er mál með vexti að Snorri Óttars, Adda og grísirnir þrír eru að flytja til Horsens (í dag skilst mér!), og það vill svo skemmtilega til að Ryanair flýgur beint frá Stansted til Árósa, næsti bær við Horsens. Ennþá skemmtilegra: Ryanair var að losa sig við miða núna í lok apríl svo við fengum miða fyrir okkur öll á spottprís!

Syndicate content Syndicate content