Lýdía Kristín Sigurðardóttir's blog

Loksins loksins...

... kom almennilegt veður! Eftir þessa köldu daga í Apríl kann maður sko alveg að meta það þegar sólin loksins lætur sjá sig og rigning fer eitthvað annað!

Ég og Ísak vorum heima í dag vegna þess að Ísak er lasinn eins og ég bloggaði um í gær. Ég nýtti daginn í það að planta jarðarberjaplöntunum mínum. Ég keypti þessar plöntur fyrir tveim vikum, en það er bara búið að vera svo hrikalega kalt og frost á nóttunni að þær hafa bara verið inni að mestu. Svo ég ákvað í dag, í bjartsýnisskapi, að planta plöntunum úti. Þannig að núna krossum við fingur og vonum að það hætt að frysta, snjóa og að haglið láti ekki sjá sig meir!!

Kveðja Lýdía

Ísak lasinn

Núna er litli kúturinn okkar lasinn. Hann er með sýkingu í auganu, hita, hósta og astma. Ég hef ekki oft séð hann svo lasinn að hann bara liggur fyrir allan daginn :( Vonandi verður hann samt betri á morgun. Ég fór með hann til læknis í dag, hann fékk dropa í augað og náttúrulega sýklalyf. Ég fékk ekki almennilega útskýringu á því af hverju hann þarf sýklalyf þannig að ég er á báðum áttum með að gefa honum það eða ekki. En það má nefna það að maður fer ekki út frá læknunum hérna nema hafa uppá skrifað sýklalyf.

Kveðja Lýdía

Gullkorn frá Ísak

Ég og Ísak voru að labba heim úr leikskólanum í dag. Honum finnst voða gaman að hlaupa og hleypur pínu á undan mér. Ég kalla til hans

Ég: "Ísak ekki hlaupa út á götu" Ísak: "Why" (með mjög enskum hreim) Ég: "Vegna þess að það getur komið bíll og keyrt á þig" Ísak: "Why" Ég: "Vegna þess að kannski sér hann þig ekki og keyrir á þig og þú meiðir þig rosalega rosalega mikið"

Ísak stoppar á grasinu við gangstéttina stoppar í smá stund og segir svo "Can´t you fix me?"

Nýjar myndir

Jæja loksins eru komnar nýjar myndir inn í albúm. Endilega kíkið.

Kveðja úr snjónum á Englandi

Sumarið komið...

Já eða sumartíminn allavega. Við hérna í Englandinu erum nú komin klukkutíma á undan Íslandi.

Dagbjört heyrði mig eitthvað nefna það í morgun, þegar hún var að klæða sig, að það væri komin sumartími. Hún var sko fljót að grípa það, hætti að klæða sig í buxurnar, og sagði "HEY það er þá komið sumar!!!" alveg ótrúlega kát. Á nokkrum sekúndubrotum sá ég hana fyrir mér striplast um í hlírarbol og stuttu pylsi, berfætta í sandölum, úti í 5 stiga hita roki og rigningu (eins og það var í gær), skjálfandi úr kulda með bláar varir en neita að fara í buxur vegna þess að það væri sumar. Ég var því ekki lengi að svara að það ætti bara við um klukkuna en ekki sumarið sjálft. Hún tók því sem betur fer góðu og gildu og hélt áfram að klæða sig í buxurnar.

Annars var veðrið mjög gott í dag um 10 stiga hiti í forsælu og sól og heiðskýrt. Því miður lá ég (Lýdía) veik upp í rúmi í alla dag. En hinir á heimili voru dugleg að nýta sér góða veðrið. Ég var svo orðin nokkuð hress seinni partinn þannig að við fjölskyldan ásamt Möggu (mömmu hans Mumma) röltum Rauðu kúnna, sem er bar/veitingahús, og fengum okkur að borða.

En þar sem það er byrjað að vora erum við byrjuð að huga að sumarfríi. Þar sem ég er nýbyrjuð í vinnu þá á ég ekkert launað sumarfrí. Mummi á samt einhverjar vikur. En Dagbjört er í fríi í 6 vikur frá 11.júlí og er það ætlunin að fara með hana til Íslands og skilja hana þar eftir hjá ættingjum ;) Mummi og Ísak fara sjálfsagt með hana og svo ætlar Þórir afi hennar, skilst mér, að koma til Englands í Ágúst og þá gæti hún komin með honum til baka. Ég veit að Dagbjört hefði ekkert á móti því að eyða smá tíma hjá Öfum og Ömmu, frænkum og frændum hvar á landinu það er. En það væri gaman að heyra frá ykkur hvort einhver hefði tækifæri og getu til þess að fá hana í heimsókn í einhverja daga á þessum tíma, hugsunin var að hún fengi að vera á Íslandi í 2 - 3 vikur ein.

Jæja best að fara að koma sér í bælið. Kveðja Lýdía

Ný vinna og fleira

Löngu orðið tímabært að skrifa eitthvað á þetta blogg!!

Eins og þið flest öll vitið byrjaði ég (Lýdía) í fullri vinnu 2. febrúar. Vinnan er yndisleg, er að vinna með ungbörnunum sem eru rétt byrjuð að labba eða frá 12 mánaða til svona 18 mánaða. Eða þangað til þau hafa vit og þroska til að færast yfir á kjagara (toddler) deildina. Ef ekki væri fyrir hundskítléleg laun og MIKLA pappírsvinnu væri ég yfir mig ánægð. En alltaf þessari athuganir og endurmat sífellt á starfinu á hverjum degi, ásamt skriflegu mati á hverju barni í hverjum þroskaflokki fyrir sig, ásamt því að gera nákvæma athuganir á því hvar barnið er að leika sér, við hvað og hjá hvaða barni. Sem betur fer þarf ég þó ekki að gera á hverju barni á hverjum degi, hahaha. Þessar athuganir finnst mér svolítið falla um sjálfa sig, jú auðvitað eru þær nauðsynlegar til þess að kynnast börnunum og til að gera starfið betra. En þegar maður er mest með 6 börn og yfirleitt bara með 1-3 börn, getur maður ekki annað en kynnst krakkakrílunum vel. Því finnst mér ég alltaf vera að skrifa það sama aftur og aftur um starfið. En auðvitað er þetta svosem góður lærdómur. Svo má nú ekki gleyma vikuplani þar sem allt er skipulagt út í ystu æsar og já þetta verður allt að vera vandlega skjalfært ef Offsted (grunn.- og leikskólalöggan) kæmi í heimsókn ;)

Ég get ekki annað sagt en að þetta sé allt MJÖG mikill lærdómur fyrir mig. Leikskólastarfið er mjög svo öðruvísi heldur en heima á Íslandi verð ég að segja svo ekki sé talað um að allir séu á nálum yfir því að foreldrarnir séu ánægðir eða ekki. Bara svo ég nefni eitt annað fyrir utan allar þessar athuganir, þá eru börn ekki send heim ef þau eru veik. Krakkarnir eru með hitalækkandi verkjalyf í leikskólanum og foreldrar hafa gefið leyfi til að nota það. Þetta er bara talið hinn eðlilegasti hlutur að ef barn er með hita eða almennt slappt sé því gefið hitalækkandi.

Jæja nóg um það.

Þetta er sami leikskóli og Ísak er á og það er nú alveg yndisslegt að geta verið með honum eða allavega hitt hann mörgum sinnum á dag. Hann er sko alveg með það á hreinu hvað ég er að gera á leikskólanum "my mummy with babies". Hann hefur bara einu sinni verið pínu skrítinn, þegar hann sá eitt krílið mitt, sem hafði verið á hans deild, hljóp með útréttann faðminn þegar ég kom inn og ég tók það upp og knúsaði. En hann fékk nú bara sitt knús líka og það var allt í lagi.

Annars er hann búin að þroskast alveg ægilega, talar ensku á við jafnaldra sína og Íslensku líka (held ég). En hann blandar voðalega miklu og grípur mjög oft frekar í enskuna frekar en íslenskuna. Svo er hann nú alveg að verða 3ja ára, alveg ótrúlegt hvað tíminn líður!! Bara rúmt ár þangað til hann byrjar í skóla hérna út í Englandi!

Dagbjörtu gengur mjög vel í skólanum og hefur þroskast mjög mikið síðan um áramótin, finnst okkur. Síðan ég byrjaði að vinna hefur hún róast alveg rosalega mikið. Eflaust hefur þetta verið afbrýðisemi í henni sem kom fram í svona óþekkt og skapofsa. Við vorum á foreldrafundi í skólanum á fimmtudaginn og hafði kennarinn í raun ekkert nema gott um hana að segja, hún stendur sig vel í öllu. Enskan hennar (er að mati kennarans) alveg ótrúlega góð miðað við að hún hefur bara lært hana í 18 mánuði. Hún hefur samt reyndar aðeins verið að draga sig í hlé í skólanum, spyr ekki eins mikið og réttir ekki eins mikið upp hendi til að svara eins og hún gerir. En hvort það sé eitthvað tengt þroska, feimni, tungumálaörðugleikum eða einhverju öðrum erum við ekki viss um. Hún kemur í gæslu í leikskólan hjá mér 3 daga í viku og er svo 2 daga í viku í gæslu sem er starfandi í skólanum. Henni líka þetta bara ágætlega og getur ekki beðið eftir því að bróðir hennar verði færður á elstu deildina, því þá getur hún leikið við hann eftir skóla.

Svo er ég í enskuskóla einu sinni í viku, er búin að vera í honum síðan í vor eins og þið vitið. Hef reyndar aðeins þurft að skrópa eftir að ég byrjaði að vinna sökum veikinda. Í einustu viku tók ég síðan mitt fyrsta próf, svokallað Level 1, en þú þarft að vera búin að taka það og Level 2 til þess geta tekið GCSE, sem er framhaldsskólapróf í ensku. Mig langar voðalega til að stefna að því, en það verður nú ekki fyrr en eftir 1 og 1/2 held ég, þar sem að enskan mín er nú ekkert voðalega góð þó svo að skylningurinn sé mjög góður. Í þessu level 1 og 2 prófum er aðallega verið að prófa skilning, en ekkert farið í t.d. að skrifa texta eða almenna málfræði. Þó þarf maður reyndar að vita t.d. hvar punktar og kommur eiga að vera, svo og stórir stafir.

Jæja læt þetta duga í bili. Kveðja Lýdía

Jóla og áramótakveðjur

Hæ hæ

Allt er fínt að frétta frá okkur. Við erum búin að eiga ágæt jól, þó svo þau hafi verið pínu skrítin þar sem við erum vön að hafa allavega einhvern í fjölskyldunni hjá okkur. En það er búið að borða mikið og slappa mikið af og horfa mikið á sjónvarp. Svefninn hjá öllum er komin í algjört rugl, svo ekki sé meira sagt.

Smá af okkur

Hæ Hæ

Við erum alls ekki nógu dugleg að skrifa hérna!!

Það er nú svo sem ekki mikið að frétta af okkur. Dagbjört er í skólanum á daginn og ég og Ísak bara að dúlla okkur heima.

Börnin stækka og stækka

Hæ hæ

Dagbjört vildi láta mæla sig alla bak og fyrir í gærkveldi áður en hún fór að sofa, og þá vildi auðvitað Ísak líka láta mæla sig. Svo var þetta allt nákvæmlega skjalfest af stelpunni.

Hérna koma mælingarnar:

Haus: 55 cm (Dagbjört)
52,5 cm (Ísak)

Hendur: 53 cm (Dagbjört)
34 cm (Ísak)

Fætur: 61 cm (Dagbjört)
36 cm (Ísak)

Söngvasveinninn mikli

Ísak er orðinn ótrúlega klár að syngja og er hreinlega alltaf raulandi eitthvað, annað hvort á íslensku eða ensku. Í dag í bílnum söng hann Happy birthday á ensku alveg hástöfum og missti ekki úr einu einasta orði, nema undir það seinasta þar sem nafn og aldur á að koma þá var eitthvað muldrað, haha.

Íslandsferð

Hæhó

Jæja við leggjum af stað til Íslands eld snemma í fyrramálið. Lending er klukkan 14:40 að staðartíma á Íslandi.

Það er hægt að ná í okkur í gsm símann minn (Lýdíu), ég verð með gamla góða númerið mitt.

Plan:

Mánudagskvöld: Matur til Mömmu (Lýdíu)

Þriðjudagur: Hádegismatur hjá Mána og Dröfn.
Kvöldið er ennþá laust held ég.

Miðvikudagskvöld: Stelpurkvöld hjá Lýdíu, Mummi og börnin eru laus.

JÍBBÍLÍDEYDÚ

Hallú

Haldiði ekki bara að ég sé búin að fá vinnu, (bros allan hringinn af gleði). Það meira að segja á óska vinnustaðnum mínum,liggaliggalálá. Ísak byrjar bara á sama tíma og ég :D

Ég byrja 21.ágúst, hún hefði viljað að ég gæti byrjað bara strax, en fyrst við vorum búin að skipuleggja 3 vikur í sumarfrí þá er eiginlega betra að ég byrji bara eftir það. Mummi fer þá með Ísak í aðlögun og ég byrja að vinna.

Dagurinn í gær

Mummi gleymdi náttúrulega aðal dæminu í gær :Þ

Í gær 17. júní var hérna á Englandi feðradagurinn. Dagbjört valdi fyrir pabba sinn kort og myndramma í gjöf. Ég reif mig á fætur eldsnemma með 38 stiga hita og hjálpaði Dagbjörtu að útbúa morgun mat í rúmið fyrir pabba sinn.
Á með hún skrifaði á kortið bakaði ég skonsur :) og Ísak borðaði morgunmatinn sinn og skildi ekkert hvað var í gangi.

duglegur drengur

Ég var niðri í tölvunni í morgun og Ísak var uppi. Eftir smá stund kalla ég á hann

Ég: Ísak

(Heyri ég litla fætur hlaupa að stiganum)

Ísak: Hva? (Kallar hann niður)
Ég: Komdu niður!
Ísak: Nei!
Ég: Hvað ertu að gera?
Ísak: liða bók mumu!
Ísak: Mamma!! Liða bók?
Ég: Já ég er alveg að koma
Ísak: Já, og hleypur aftur inn í herbergi.

Sól sól sól sól sól og aftur sól

Hellú

Nú er sólin nú aldeilis búin að skína á okkur í tvo daga!!! Eftir tveggja vikna rigningu og kulda er loksins komin sól.
26 stiga hiti og sól og blíða, þarf að segja meir :)
Sólavörninni var makað á liðið í morgun og eftir atvikið í Danmörku (þar sem ég brann heldur illa) maka ég einnig á vörn á sjálfa mig :)

Það er búið að vera að bursla í sundlauginni í morgun, vatnið var þó frekar kalt að sögn barnanna. Við erum búin að segja góðan daginn við froskanna sem eru alltaf að verða fleiri og fleiri.

London ferð og fleira

Hæ hó

Héðan er allt gott að frétta. Helgin var frekar róleg. Dagbjört missti tvær tennur og er því orðin mjög skrautleg ;) Ég ætla að reyna að ná mynd af henni í dag þegar hún kemur heim úr skólanum.

Tanja dóttir Kollu og Eyðs kom og gisti hjá okkur á laugardagskvöldið. Þær vinkonur eru alveg yndislegar saman og geta alveg gleymt sér í leiknum í langan tíma. Þær voru nú orðnar mjög þreyttar um 9 leytið, enda búnar að hoppa á tampólíni og í hoppukastala nánast allan daginn heima hjá Tönju. Þær voru því vel sáttar við að fara upp í rúm. Dagbjört las alveg heilmikið fyrir Tönju, sem var að eiginsögn of þreytt til þess að skoða bækur.

Fékk vinnuna, en...

Jæja leikskólastjórinn frá Cherry Tree hringdi áðan og bauð mér vinnuna :D þannig að ég hef greinilega gert eitthvað rétt í þessu viðtali á miðvikudaginn.

En aftur á móti þá afþakkaði ég vinnuna aðallega út af laununum. Ohh og núna er ég með í maganum vegna þess að konugreyjið varð svo vonsvikin í símann og mig langaði alveg að fara að vinna með þessi litlu kríli, og þetta hefði verið ágætis reynsla að vera deildastjóri. EN LAUNIN maður, maður verður víst að lifa líka.

Margt og mikið, en aðallega vinnumál

Jæja þá er kominn föstudagur. Íslendingar komust ekki í úrslit í Eurovision, en hver bjóst þó við því. Það kom frábær tillaga sem framlag okkar á næsta ári á barnalandi. Senda einhverjn karlmann berann á ofan, hárprúðann með víkingarhatt. Dansararnir vera að sjálfsögðu að vera víkingar líka. Önnu hver setning á að vera "Shake it" og restin á forníslensku. Svo verða bara allir að hrissta sig nógu mikið á sviðinu. Ég er viss um að Botleðjugaurarnir væru tilbúnir í þetta. Þeir semja bara eitthvað ágætisrokklag og búa til bulltexta með orðinu "shake it" og svo segjum við bara að þetta sé forníslenska ;) Nei ég segi nú bara svona.

SVOOOOO seinheppin :-/

Ég er nú alveg ótrúleg!!!!

Fyrir nákvæmlega viku síðan var ég að flýta mér niður stigann með þeim afleiðingum að ég renn einhvern vegin og lendi á afturendanum, ÁÁÁÁIIIII. Ísak sem var á undan mér niður stigann gat ekkert annað sagt en "ó deeaa" en fann ægilega til með mömmu sinni sem meiddi sig ekkert lítið!!!.
Jæja af þessu hrakföllum fékk ég vænan marblett á aðra rasskinnina og varð MJÖG aum í afturendanum. Marbletturinn var þó EKKI eins stór og sá sem ég fékk seinast þegar ég datt í stiganum!!! Já gott fólk þetta var í ANNAÐ sinn sem ég dett í stiganum.

Fyrsta atvinnuviðtalið

Ég fór í mitt fyrsta atvinnuviðtal í dag. OMG hvað ég var stressuð, en náði nú samt að brosa og tala nokkuð eðlilega. Viðtalið tók um klukkutíma og mér finnst ég hafa talað endalaust mikið.
Þær spurði mig allskyns spurninga sem við kemur starfinu, t.d. hvað ég mundi gera ef ég yrði vitni að því að annar starfsmaður myndi slá eða rasskella eitthvað barn, ásamt fullt af öðrum spurningum sem ég náði að svar alveg ágætlega held ég þrátt fyrir mína bjöguðu ensku. Þær voru mjög jákvæðar fannst mér og voru mjög skilningsríkar þó svo það tæki mig smá tíma að hugsa upp svar á ensku við spurningunum, hehe.

Orðaforði Ísaks

Badöpt = Dagbjört
jáááp = hjálp
boþa = borða
vöng = Svangur
hjóla = keyra dúkkuvagn (hann er geymdur hjá hjólunum)
leika = segir sig sjálft
jógút = jógúrt
appetít = epli
appetíta = appelsína
vat = vatn
þapit = Froskur
voffi = hundur
kiþa = kisa
gagagú = Hæna/hani
vanta = vatnar (hann vantar alltaf allt, vanta húfa, vanta keþ o.s.f)
ba = bað
kylikl = lykill (hann vantar oft kylikl þegar við förum út)

Ferð til Íslands

Hæ allir

Við erum alltaf að gleyma að láta vita hvenær við komum til Íslands í sumar, en við erum löngu búin að kaupa ferðina. Við komum semsagt til Íslands mánudaginn 16.júlí og förum aftur 1.ágúst.
Það er búið að skipuleggja bústaðaferð á Vestfjörðum (ef við fáum bústað) í viku af þessum tíma. Svo á að kíkja til Akureyrar í nokkra daga.

Það er ekki ennþá vitað hvar við munum gista í Reykjavík, það bendir allt til þess að við þurfum að skipta okkur í tvennt því við viljum nú helst ekki þurfa að reka fólk úr rúmunum sínum ;) En það kemur allt í ljós...

Tjörnin okkar og gullkorn frá Dagbjörtu

"Það er svo yndislegt líf í öllu lífinu"

Þetta sagði hún eftir að hafa verið að skoða sætu (að hennar sögn) froskaseiðin. Þessi ótrúlega "sætu" froskaseiði líkjast samt helst stórum svörtum sæðisfrumun og ÉG sé ekkert sætt við þau, haha. En Dagbjört og Ísak eru alveg heilluð af þessum ofvirku seiðum sem iða í tjörninni okkar. Ísak kallar gjarnan þessar svörtu sæðisfrumur "ðapit"

Spánar dagur

Annar dagur í sólinni. Allir svafu frameftir í morgun, klukkan 9:45 fór ég framúr og vakti börnin og Mumma :)
Við borðuðum síðan morgunmat út í garði í sól og hita. Sumir voru samt morgunúrillir og neituðu að koma út því henni var svo kalt, þannig að hún sat upp í sófa undir teppi og horfði á Doctor who eða restina af þættinum síðan í gær. Svo þegar hún kom loksins út var hún að kafna úr hita og fór í bikiníin sín og krakkarnir voru að sulla með vatn á meðan ég slappaði af í sólinni.

Yndislegur dagur

Hæ hæ

Sól og blíða hér í Leicester og spáð betra veðri á morgun eða um 22 gráðum og talað er um hitamet í apríl.

Ég og Dagbjört vorum búnar að ákveða að fara niðrí bæ í verslunarmiðstöðina (Shires) vegna þess að Dagbjörtu langaði að taka þátt í "Star of Leicester" samkeppni. Þannig að við fórum niðrí bæ og Dagbjört lét taka nokkrar ljósmyndir af sér. Síðan löbbuðum við aðeins um bæinn í glaða sólskini, fengum okkur að borða og fórum síðan heim.

Tilkynning

Hæ allir

Það hefur nú ekki mikið gerst á þessari síðu undanfarna mánuði, en ég lofa að það verða komnar inn nýjar myndir og nýjar færslur af gríslingunum okkar fyrir helgi.

Kveðja Lýdía

Kvittið

Endilega látið okkur vita að þið séuð að lesa með því að kvitta fyrir í athugasemdunum. Því miður virkar ekki gestabókin sem skildi þar sem að einhverjir óprúttnir aðilar setja inn hundruðir af netslóðum.

Kveðja Lýdía

ferð á slysó

Um seinustu helgi fór ég fyrstu ferðina með Ísak upp á slysó. Hann var eitthvað að hoppa hérna í sófanum hjá pabba sínum og náði einhvern vegin að reka eyrað í ofninn sem er fyrir aftan sófann. Það blæddi alveg ægilega mikið og það var grátið alveg ægilega mikið.
Mér fannst sárið eitthvað svo gapandi þannig að ég vildi endilega fara með hann og láta kíkja á hann og þar sem að heilsugæslan er lokuð um helgar var spítalinn það eina sem hægt var að fara.

Syndicate content Syndicate content