Ísak Árni Guðmundsson's blog
Fyrsta alvöru færslan á nýju heimasíðunum okkar
Sælinú. Hann Pabbi minn er LOKSINS búinn að setja upp nýjar vefsíður fyrir okkur fjölskylduna, svo núna er ég með mitt eigið blogg og Dagbjört og Pabbi og Mamma líka, allt á sama staðnum. Hér eftir má því sjá vefdagbókina, eða bloggið, mitt á þessum síðum en ekki barnalandi.
Það nýjasta er að Mamma keypti nýlega handa mér og Dagbjörtu flottan sandkassa á Netinu hér í Englandi. Allt í lagi með það, EN haldiði ekki að sauðirnir hafi gleymt hvorki meira né minna en 24x boltum og sent 24x stórar skífur í staðinn? Þar af leiðandi gat Mamma duglega ekki sett sandkassann saman (NB án hjálpar Pabba sko).
Eldra blogg af Barnalandi
Sælinú. Hér eru eldri dagbókarfærslur sem Mamma og Pabbi voru búin að setja inn á barnalandi (http://isakarni.barnaland.is/vefbok/):
Við Pabbi vorum einir heima seinnipartinn í gær, sunnudag. Mamma og Dagbjört stóra systir fóru nebblilega alla leið inn í borgina að fá sér kakó á kaffihúsi (og versla smá í leiðinni). Það var nú gaman að vera svona einir heima, þó ég hafi nú sofið nærri tvo tíma.
En við vorum talsvert úti í góða veðrinu að dandalast og sáum m.a.s. tvo litla froska hoppa yfir grasið, á leið úr tjörninni í blómabeðið. Pabbi var svo snjall að hann gómaði annan froskinn og sýndi mér hann, áður en við slepptum honum aftur í tjörnina. Það búa sko allnokkrir froskar í tjörninni okkar, þar á meðal allavega einn nokkuð stór!






























