• Börnum bannað að nota sundgleraugu á sundhátíð

    by  • 18. febrúar 2010 • Uncategorized • 0 Comments

    Bretar eru alveg að ganga af göflunum með öryggisráðstafanir ýmiskonar. Í þessu „barnfóstruríki“ (e. nanny state) sem við búum í um þessar mundir eru menn með gríðarmiklar áhyggjur af sundgleraugnanotkun barna.

    Smá inngangur fyrst: á síðasta ári þurftum við Lýdía að kvitta fyrir um að við vildum að Dagbjört notað sundgleraugu í skólasundi, og vorum vöruð við ýmis konar hættum við notkun á slíkum tækjum. Plastið gæti brotnað og menn meitt sig á brotunum, teygjan valdið því að gleraugun skellist í augun, og fleira til. Bollocks, „health & safety“ madness sko!

    Það nýjasta í þessu máli er að börnum sem taka þátt í sundhátíð hér í borg er  bannað að nota sundgleraugu nema þau sýni læknisvottorð um að þau þurfi að nota glerauga af læknisástæðum. Í borgarblaðinu Leicester Mercury í dag:

    Children banned from wearing swim goggles at Leicestershire leisure centre.

    Youngsters were banned from wearing goggles at a swimming festival – for health and safety reasons.

    Children taking part in the Aqua Splash Festival at the Hermitage Leisure Centre, in Whitwick, were told they could only wear goggles if they had a medical reason to do so.

    The institute guidelines, which have been in place since 2006, state there has been a history of accidents „firstly as a result of goggles being made of glass or breakable plastics and secondly during the putting on and taking off of goggles“.

    A spokesman for the institute say it encouraged children not to wear goggles – because „part of the learning to swim experience is for a child to be able to deal with splashing in the face“ – but that it was not an enforced rule.

    Þessi plága er sem betur fer tiltölulega takmörkuð við starfsemi hins opinbera (t.d. skólar, bæjarfélög). Við höfum til dæmis ekki séð neitt svona í tengslum við sundnámskeið á vegum einkaaðila sem Dagbjört og Ísak sækja bæði. Þetta er einn eitt dæmið um heimskulegar reglur  sem hafa ekkert að gera með heilsu eða öryggi fólks, heldur ofsahræðslu við málssóknir: barn meiðir sig á eigin sundgleraugum, foreldri fer í mál við umsjónaraðila sundlaugar og fær milljónir.

    About

    Academic researcher interested in bioinformatics, Linked Data publishing and applications of digital identity in research data publication.

    Færðu inn athugasemd

    Netfang þitt verður ekki birt.