• Eldra blogg af Barnalandi

    by  • 7. október 2006 • Óflokkað • 0 Comments

    Hér eru eldri dagbókarfærslur sem Mamma og Pabbi voru búin að setja inn á barnalandi (http://dagbjort.barnaland.is/vefbok/):

    Hæ allir

    Það er langt síðan síðast en hérna eru smá fréttir af mér.

    Ég er flutt til Englands og er búin að vera hérna í tvo daga. Það var rosalega gaman í flugvélinni. Ég fékk mitt eigið sæti reyndar fengum við öll okkar eigin sæti og fengum meira að segja eitt aukasæti. Ég var roselga dugleg að lita og leika mér í flugvélinni, það var enginn matur sem mér fannst náttúrulega algjört svindl þar sem ég hafði fengið það frá mjög áreiðanlegum heimildum að í flugvélum fær maður alltaf eitthvað að borða (frá Ingu vinkonu sem sagt) en mamma keypti handa mér snakkdollu sem var mjög gott, svo fékk ég líka flugvélapenna með tölvuspili.

    Við þurftum svo að bíða lengi lengi lengi á flugvellinum eftir hjólunum og svo var líka eitthvað vesen með bókunina á bílnum okkar. Því komum við ROSALEGA seint á leiðarenda, eftir að hafa stoppað einu sinni á leiðinni og fengið okkur að borða og pissað. Við fórum bara strax að sofa eftir að við komum.

    Daginn eftir vöknuðum við ÓGEÐSLEGA snemma og það var ROSALEGA erfitt að vakna, líka hafði ég farið mjög seint að sofa sem og allir. En við drifum okkur niðrí bæ, en pabbi hélt að við ættum að mæta klukkan 10 til þess að skrifa undir einhverja samninga. Það kom svo í ljós að við áttum ekki að mæta fyrr en klukkan 11. Þannig að við höfðum klukktíma til þess aðeins að labba í bænum. Við fundum risastóran markað með ávöxtum og grænmeti (sem er uppáhaldið mitt) og ég vildi endilega fara og kaupa eitthvað. Við fundum kaffihús handa pabba og fórum að skoða hvað væri nú í boði þarna á þessum markaði. Mig langaði nú að kaupa næstum því eitt af öllu, en þetta var sko þannig að það var ekkert hægt að fá eitt af neinu heldur bara fullt af öllu, hehe. ég ákvað þá að mig langaði mest í vínber, þannig að við löbbuðum og mamma fann handa mér örugglega 5 kíló af vínberjum á 130 krónur eða 1 pund, þetta var allavega það mikið að þetta fyllti helminginn af haldapoka og var níðþungt, hehe.

    Jæja ég skrifa meira seinna því það er kominn matur.

    Kveðja Dagbjört Ösp
    11.8.2006 | 18:35

    Hæ allir

    Jæja Mamma og Pabbi gáfu mér afmælisgjöfina í dag. Ég fékk að fara í dýrabúð og velja mér tvo fiska. Ég skýrði þær að sjálfsögðu strax og heita þær Sóley og Perla. Þær eru alveg ótrúlega sætar. Við ætluðum að hafa búrið þeirra uppí hillu inní stofu, en hillan bara svignaði undan þingdinni á búrinu Þannig að þangað til mamma kaupir eitthvað sem er nógu sterkt til þess að bera búrið er það inná baði.

    Ég gaf þeim að borða áður en ég fór að sofa. Þær voru alveg ótrúlega svangar og borðuðu og borðuðu. Það mætti halda að þær hafi ekki engið neitt að borða í dýrabúðinni.

    Ég ætla að hugsa ótrúlega vel um þær Perlu og Sóley, með hjálp mömmu og pabba auðvitað og það er nú eins gott að Ísak verði góður við þær!!

    Kveðja Dagbjört Ösp fiskamamma
    17.11.2005 | 23:38

    LOksins loksins loksins er ég orðin 5 ára. Ég hélt hvorki meira né minna en 3 afmælisveislur fyrst komu ömmur og afar, langömmur og langafi og Siggi frændi og Ása næstum frænka og Jóhanna frænka og Kristín frænka og einhverjir fleiri man það ekki alveg. Ég fékk náttúrulega fullt af skemmtilegum gjöfum.

    Svo komu allir vinir mínir daginn eftir. Það var ótrúlega gaman og aftur fékk ég fullt af skemmtilegum gjöfum.

    Svo komu vinir mömmu og pabba og börnin þeirra og aftur fékk ég fullt af skemmtilegum gjöfum.

    En samt á ég ennþá eftir að fá eina gjöf í viðbót. En mamma og pabbi hafa ekki ennþá keypt handa mér afmælisgjöf. Haldið þið að það séu foreldrar. En það verður vonandi ekki langt að bíða þangað til ég fæ hana ;)

    Kveðja Dagbjört ösp
    16.11.2005 | 00:47

    Núna er pabbi farin til útlanda að vinna. Ég sakna hans alveg ótrúlega mikið. En ég er búin að vera rosalega dugleg við mömmu mína. Hátta mig alltaf þegar mamma segir og borða matinn minn og svona og síðast en ekki síst er ég dulega að hjálpa mömmu að passa litla bróðir.

    Nú á ég bráðum afmæli og ætla að halda smá afmælisveislu. Öllum þeim sem verður boðið fá annaðhvort símtal eða boðskort, fer allt eftir því hvað mamma nennir að gera.

    Á morgun ætla ég að baka hjartapizzu handa mér í matinn. Mér finnst pizzan bragaðst best ef hún er hjartalaga. Mamma klippir út stórt hjarta og fæ að fletja út deigið og svo hjálpar mamma mér að skera degið til.

    Svo ætlum við að baka súkkulaðisnúða um helgina. Kannski geymum við nokkra handa pabba vegna þess að hann kemur heim á mánudagsmorguninn, aldrei að vita

    kveðja úr draumaheimi

    Dagbjört Ösp
    28.10.2005 | 00:16

    Jæja núna er kominn vetur. Ég er byrjuð í ballet og ber mig bara alveg ótrúlega vel þar. Ég er nú samt eitthvað neikvæð þessa dagana og finnst allt leiðinlegt. Nenni ekki í leikskólann og ekki í ballet heldur. En vonandi er þetta bara eitthvað smá tímabil. Mamma leyfir mér nú ekki að komast upp með neitt Ég er í ballet með Ingu vinkonu minni og það er ótrúlega skemmtilegt.

    Á seinasta sunnudag bakaði ég köku með smá hjálp frá henni mömmu. Svo settum við krem á hana og ég bauð Ingu og Elísu í smá kaffiboð. Það var ótrúlega gaman og kakan var mjög góð. Svo um kvöldið koma amma kolla, Hafdís og Alexandra Ósk litla frænka mín í mat til okkar og borðuðu svo restina af kökunni minni.

    Á morgun er pabbi að fara í bandaríkjanna og á ég eftir að sakna hans ótrúlega mikið en það verður alveg ótrúlega skemmtilegt að fá hann til baka

    Svo á ég bráðum afmæli. Inga vinkona mín verður á Flórida þegar ég á afmæli, það finnst mér ótrúlega leiðinlegt. En kannski bíð ég henni bara í privat afmælisveislu í staðinn.

    Jæja læt þetta duga í bili.

    Kveðja Dagbjört Ösp.
    23.10.2005 | 00:17

    Hæ allir

    Rosalega margt hefur gerst síðan mamma skrifaði fyrir mig síðast. Ég er orðin stóra systir og allt. Ég eignaðist lítinn sætan bróðir í júní. Ég er rosalega góð stórasystir, alltaf að kyssa og knúsa bróðir minn þó svo að mömmu finnist nú stundum einum of sko, hehe.

    Annars er ég komin í sumarfrí í leikskólanum mínum og ég fór með mömmu og pabba og litla bróðir til Akureyrar um seinustu helgi. Það var rosalega gaman. Við fórum í sumarbústaðinn til Stebba og Lenu og ég fékk að fara á gúmmíbát. Mér fannst það ROSALEGA gaman þrátt fyrir að hafa orðið rennblaut.

    En mikið fannst mér nú gott að komast heim. Alla leiðina heim í bílnum var ég að velta fyrir mér hvort ég væri búin að gleyma hvernig herbergið mitt liti út. Svo gat ég ekki beðið með að fara og hitta Ingu vinkonu mína, þannig að mamma og pabbi leyfðu mér aðeins að fara til hennar á meðan þau elduðu matinn.

    Jæja mamma ætlar að setja inn nýjar myndir af mér á morgun.

    Læt þetta duga í bili

    Kveðja Dagbjört Ösp
    10.7.2005 | 00:30

    Hæ allir

    Helgin byrjaði vel. Á laugardaginn var fimleikasýning hjá mér. Ég stóð mig alveg frábærlega sagði mamma Amma Kolla, Hafdís frænka og Vigdís komu að sjá mig. Mér þótti það voðalega skemmtilegt, líka finnst mér fátt skemmtilegra en að sýna mig smá

    Vigdís fékk mig síðan lánaða og ég fór með henni í heimsókn til vinkonu hennar sem á stelpu sem er jafngömul og ég og strák sem er 3ja ára. Mér fannst það rosalega gaman og ég og Auður Ester náðum vel saman.

    Ég vaknaði síðan um miðja nótt aðfaranótt sunnudags og var þá orðin lasin. Ég kúrði upp í rúmi hjá mömmu og pabba og náði að sofna smá áður. Svo um 6 leitið vaknaði ég aftur því ég var með svo mikinn verk í höfðinu mínu. En ég er svo þrjósk stelpa og vildi ekki taka verkjatöflu. Um 8 leytið náði mamma að plata verkjatöflu ofaní mig og ég náði að sofna fljótlega eftir það.

    Ég var svo bara frekar spræk þegar ég vaknaði um hádegisbilið, nema hvað ég hafði ekki lyst á að borða. Mér finnst alveg hundleiðinlegt að vera lasin og mega ekki fara út að leika mér við vinkonurnar mínar Pabbi fór og keypti handa mér frostpinna og borðaði ég nokkra, en hafði ekki lyst á að borða neitt annað. Ég sofnaði síðan aftur seinnipartinn því mér var svo illt í augunum. Mamma sagði mér að prófa að loka þeim og ég bara sofnaði strax. Mér leið ekkert mikið betur þegar ég vaknaði og var með voðalega mikinn hausverk og illt í maganum. En ég vildi samt ekki taka verkjatöflu Ég fór svo uppí rúm um 9 leytið og þá mældi mamma mig, ég var þá með um 39 stiga hita og leið ekkert roselga vel. En eftir að mamma og pabbi voru búin að strjúka magann minn svolítið náði ég að sofna. Vonandi verð ég orðin frísk á morgun!!!

    Kveðja Dagbjört Ösp
    30.5.2005 | 00:23

    Ég gleymdi að segja það að núna fer litla sistkynið mitt alveg að koma. Ég bíð alveg með óþregju eftir því og finnst alveg ótrúlega leiðinlegt að bíða svona eftir því. En mamma segir að það sé alveg að koma og svo hefur bumban hennar mömmu líka stækkað alveg rosalega mikið. Litla krílið er komið með heimasíðu http://www.barnaland.is/barn/22178 endilega kíkið á bumbuna hennar mömmu. Svo skrifar mamma líka þangað strax og krílið kemur :)

    Kveðja Dagbjört Ösp
    22.5.2005 | 20:02

    Hæ allir

    Af mér er ekki mikið af frétta. Ég fór í sveitaferð með Pabba og fleirum úr leikskólanum mínum um daginn, það sem stóð helst upp úr voru litlu kettlingarnir. Mér fannst mjög gaman að hitta líka vinkonur mínar og pabbi sagði að það hafi verið smá rifrildi í rútunni á leiðinni heim hver ætti að sitja hjá hverjum. En allt þetta reddaðist á endanum. Mamma setur myndir inn frá sveitaferðinni bráðlega ;)

    Það skemmtilegasta sem ég geri þessa daga er að fara út að leika mér með vinkonum mínum. Mamma og pabbi eru ótrúlega stolt af mér að geta verið svona ein úti og fara ekki út á götu. En ég gleymi mér samt stundum, en ég er nú alveg að fara að læra þetta.

    Núna eru fimleikarnir að verða búnir hjá mér. En seinasti tíminn var á laugardaginn en svo er lokasýningin í Smáranum á laugardaginn næsta. Ég hlakka nú ekki lítið til að vera á þessari sýningu, líka finnst mér fátt skemmtilegra en að sýna mig smá ;) Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma á sýninguna og sjá mig, hafið endilega samband við mömmu og hún segir ykkur hvenær hún er.

    Um daginn var hópastarfslok á leikskólanum mínum og var foreldrum boðið á sýningu. Ég og minn hópur lékum okkar útgáfu af öskubusku, ég var stjúpsystirin :) Þetta gekk mjög vel hjá okkur og hafði ég ekkert á móti því að standa þarna og hneygja mig og vinka mömmu minni, híhí.

    Jæja núna verð ég að fara að sofa. Ég bið mömmu að skrifa meira fljótlega ;)

    kveðja Dagbjört Ösp
    22.5.2005 | 19:52

    Hæ allir

    Margt hefur nú gerst síðan mamma skrifaði seinast fyrir mig hingað inn.

    Jólin náttúrulega komu og fóru. Ég fékk margt mjög skemmtilegt og fallegt í jólagjöf. Amma Margrét og Kristín frænka voru hjá okkur á aðfangadag. En Siggi frændi og konan hans hún Ása fóru í þetta sinn til Akureyrar.

    Mér fannst í fyrsta skiptið mjög gaman á áramótunum. Var sko ekkert hrædd við sprengjurnar og fannst mjög gaman að horfa á þær, þó svo ég hafi ekki alveg treyst mér til þess að fara út í kringum miðnætti á gamlárskvöld. En gamlárskvöldinu eyddum við heima hjá Sigga og Ásu og borðuðum dýrindis mat (eða það fannst mömmu allavega).

    Ég er ennþá að æfa fimleika og finnst það rosalega skemmtilegt. Mamma og pabbi eru rosalega stollt af mér hvað ég er dugleg, þó svo það geti verið ótrúlega erfitt að rífa sig frá barnaefninu á laugardagsmorgnum en það er alltaf svo gaman í fimleikum.

    Svo fékk ég ótrúlega skemmtilegar fréttir í kringum jólin. En þá sögðu mamma og pabbi mér að ég snemma í sumar mundi ég eignast lítið systkini. Vá hvað ég var glöð. Núna get ég varla beðið, en það styttist óðum í að litla krílið (eins og við köllum það) komi í heiminn. Það veit engin hvort það verður strákur eða stelpa en ég viðurkenni nú stundum að mig langi til þess að eignast systur, en það kemur bara í ljós. Þegar mamma og pabbi sögðu mér frá þessu þá sagði ég við mömmu að mig langaði bæði í strák og stelpu systkini, en það er víst bara eitt barn í maganum á mömmu. Ég er sko alveg búin að ákveða hvað krílið á að heita þegar það loksins kemur. Það á að heita Sóley ef það er stelpa og Siggi eins og Siggi frændi ef það er strákur. Fyrsti vildi ég að hann myndi heita Smári, en núna vil ég að hann heiti Siggi.

    Núna ekki alls fyrir löngu voru páskarnir. Mamma fékk þá smá frí úr skólanum og við skruppum í stutta heimsókn til Akureyrar. Við gistum hjá afa Þórir sem ég dýrka og dái og vildi nú helst bara flytja til hans. Manni leiðist sko ekki hjá honum því hann á alveg fullt af allskyns dóti sem ég má leika mér að. Við tókum hjólið með til Akureyrar og hjólaði ég meðal annars til Snorra, Öddu og Rúnars, ég sko ótrúlega dugleg að hjóla þó svo það hafi verið erfitt að hjóla upp Skarðshlíðina. Þar lék ég við Rúnar á meðan Mamma og pabbi töluðu við Snorra og Öddu. Adda á líka von á litlu kríli sem á að koma í byrjun sumars. Síðan fórum við í Kjarnaskóg en þá var hjólið eftir heima, en mér fannst bara gaman að hlaupa þar um og prófaði held ég öll leiktækin á svæðinu. Við gátum þó ekki verið lengi þar sem mamma átti svo erfitt með að labba vegna bakverkja. Við hittum líka Immu vinkonu hennar mömmu og drukkum með henni kakó á bláu könnunni. Rétt áður en við fórum síðan heim kíktum við inn til Stebba og Lenu, en þau voru að kaupa sér íbúð (Til hamingju með það :)

    Við fórum síðan heim á laugardaginn fyrir páska vegna þess að mömmu var svo illt í bakinu og þurfti að komast í rúmið sitt. Ferðin heim gekk alveg ótrúlega vel. Við lögðum frekar seint af stað heim og vildum reyna að komast sem fyrst, þannig að við stoppuðum bara einu sinni og það var örstutt stopp á Blönduósi, þar sem mamma keypti handa mér Skyr, samloku og kókó mjólk og allir fóru á klósettið. Síðan borðaði ég bara kvöldmatinn minn í bílnum, og gekk það bara mjög vel. Svo bara allt í einu vorum við komin heim!!!!!!!!!! Og ég skildi ekkert í því afhverju við þyrftum ekki að fara í gegnum göngin!! En þá hafði ég bara sofnað.

    Ég fékk alveg rosalega mörg páskaegg. Afi Þórir gaf mér eitt númer 3 sem við borðuðum saman á föstudaginn langa. Síðan á Páskadag þá fékk ég páskaegg númer 2 frá mömmu og pabba, en það páskaegg valdi ég sjálf og fannst þetta sko fallegasta páskaeggið í allri búðinni. Það rann nú ljúflega niður eftir morgunmat og eftir að hafa þurft að leita að því út um alla íbúð. Síðan seinna um daginn þá kom amma Kolla og afi Siggi með páskaegg númer 5 handa mér, ummmm. Mikið rosalega var ég glöð, líka löngu búin með mitt litla. Það er nú ennþá eitthvað eftir af því páskaeggi en ekki mikið samt.

    því miður var myndavélin okkar biluð um páskana og því voru engar páskamyndir teknar :(

    Svo er ég orðin rosalega dugleg að fara út að leika mér. Ef það er gott veður þegar ég er búin í leikskólanum fer ég stundum ein út að leik og finnst það rosalega gaman. Ég fer náttúrulega ekkert út á götu, heldur er bara fyrir aftan blokkina og á rólóvellinum sem er þar rétt hjá.

    Jæja læt þetta duga í bili

    mamma verður kannski duglegri að skrifa þegar skólinn er búinn hjá henni, hehe. En hver veit.

    Bless bless

    Dagbjört Ösp
    4.4.2005 | 00:35

    Hæ allir!

    Hver segir að hamingja fáist ekki keypt fyrir peninga?!?! ;) Þvílík og eindæmis hamingja var hjá mér um seinustu helgi þegar Mamma og Pabbi keyptu handa mér fimleikabol!!Núna get ég ekki beðið eftir því að fara í fimleika og spyr á hverjum degi hvenær þessi laugardagur kemur eiginlega!!

    Annars er það að frétta af mér að ég datt á stein á leikskólanum á mánudaginn og þurfti að fara uppá heilsugæslustöð og í hökuna mína voru saumuð 3 spor. En mikið rosalega var ég sterk! Ég grét bara smá þegar þetta gerðist og þegar ég sá allt blóðið en svo bara þegar pabbi kom var ég hætt að gráta. Elín leikskólastjóri var svo góð að skutla mér og pabba uppá heilsugæslustöð. Þar stór ég mig eins og hetja og grét ekki neitt þegar deyfi efninu var sprautað í mig eða þegar læknirinn saumaði mig! Í verðlaun fékk ég hring :) Svo bara labbaði ég og pabbi aftur á leikskólan og ég lék mér þar þangað til pabbi sótti mig svo.

    Jæja núna er ég að fara að sofa.

    Dagbjört Ösp
    13.10.2004 | 20:21

    Halló

    Það er nú orðið ansi lang síðan mamma skrifaði hérna í gesta bókina. En hún ætlar nú að fara að bæta úr því!

    Ég er byrjuð í fimleikum. Ég fór í minn annan tíma núna í morgun og þótti rosalega gaman. Mamma og pabbi komu með mér í fyrsta tíman en núna fór ég bara ein. Við fengum að fara í stóra salinn og það fannst mér rosalega gaman.

    Á eftir fórum við svo í kringluna og kíktum á vetraskó og inniskó. Mamma keypti handa mér inniskó en við ætlum að fara um næstu helgi og kaupa vetraskó.

    Núna er ég að perla og er ótrúlega dugleg. Mamma ætlar að reyna að taka til því pabbi er að koma heim á morgun og það er allt í rúst. Með honum kemur Matt, vinur okkar frá USA og ætlar að vera hjá okkur í tvö daga.

    Jæja ég læt þetta duga í bili.

    Kveðja Dagbjört ösp
    25.9.2004 | 12:36

    Hæ aftur

    Mamma gleymdi alveg að segja frá því að ég fór í 3 og 1/2 árs skoðun á fimmtudaginn. Það gekk þetta líka glimmrandi vel. Ég er með málþroski á við 4 og 1/2 árs, sé vel og er MJÖG athugul. Ég var eiginlega ekkert feimin og mamma mín og pabbi voru svo stollt af hvað ég var rosalega dugleg :) Ég fékk enga sprautu núna (HJÚKKK) en fæ eina þegar ég verð fimm ára, en það er nú langt þangað til :) Hjúkrunarkonar hrósaði mömmu og pabba fyrir að vera svona dugleg að lesa fyrir mig og telur það vera ein ástæðan fyrir hversu skýr stelpa ég er :)

    Ég var samt svolítið leið yfir að fá ekki að teikna, vegna þess að mig langaði til þess að teikna kall fyrir læknakonuna og svo kann ég líka að skrifa nokkra stafi. Ég kann að skrifa minn staf og þekki hann hvað sem er og veit hvað hann, og mömmu, pabba stafir heita og einnig nokkrir aðrir.

    Kveðja Dagbjört Ösp :)

    31.5.2004 | 00:04

    Hæ öll sömul

    Við erum búin að vera í fríi þessa helgina eins og flest allir íslendingar. Í gær þá fór ég með mömmu og pabba og þau keyptu handa mér HJÓL. Stórt hjól með hjálparadekkjum og hjálm. Hjólið er rautt og gult á litinn en ég vilji fá bleikt hjóla en það var ekki til :( Þannig að mamma leyfði mér að velja mér bleika körfu á það í staðinn og einnig bleikann barbie lúður :) Svo fórum við og keyptum hjálm, það var ekki til rauður hjálmur sem passaði á mig eins og ég vildi :( en í staðinn fékk ég bara flottan fjólubláan :) Mamma verður endilega að setja myndir af mér á hjólinu fljótlega.

    Þegar við vorum búin að kaupa hjólið í gær fórum við í smá hjólatúr eða ég allavega, mamma og pabbi löbbuðu. Við hjóluðum á leikskólann Laufskálar og vá hvað það var erfitt!! Ég gat ekki hjólað alla leið vegna þess að þetta var allt í uppí móti. Við lékum okkur í nokkra stund í rokinu. Ég og pabbi vorum sjóræningja og skipið okkar var stórarólan, ég hét Kobbi kló og pabbi var skipstjóri. Mamma var svo Pétur Pan sem ýtti skipinu okkar :)

    Síðan hjólaði ég allaleiðina heim. Sem betur fer var ég með hjálm vegna þess að ég lenti tvisvar í árekstur við grindur á leiðinni. En var ótrúlega sterk að hristi það af mér og hélt ótrauð áfram og lærði á endanum að bremsa.

    Í dag vorum við bara löt, eða réttara sagt mamma og pabbi. Þau láu í leti fram að hádegi en þá fengum við okkur að borða og drifum okkur í sund. Í sundinu hittum við síðan hana Evu frænku og ég sýndi hennar hvað ég er orðin ótrúlega dugleg að kafa með nýju sundgleraugun sem pabbi keypti handa mér í Bandaríkjunum. Við vorum heillengi í sundi og fórum síðan heim og fengum og smá snarl. Við æfðum okkur á píanóið og fórum síðan í heimsókn til Ásu Fanneyjar, Ísólar og Natans. VIð tókum hjólið að sjálfsögðu með! Þá kom í ljós að Nathan á alveg eins hjól og ég :) Við fórum á hjólunum á Garðaborg og æfðum okkur að hjóla og gera sandkökur :)

    Jæja þannig voru nú dagarnir mínir. Á morgun kemur svo nýr dagur og hver veit hvað gerist þá ;)

    Ég skrifa aftur fljótlega!

    Dagbjört Ösp
    30.5.2004 | 23:49

    Eldra blogg af Barnalandi

    by  • 7. október 2006 • Óflokkað • 0 Comments

    Sælinú. Hér eru eldri dagbókarfærslur sem Mamma og Pabbi voru búin að setja inn á barnalandi (http://isakarni.barnaland.is/vefbok/):

    Við Pabbi vorum einir heima seinnipartinn í gær, sunnudag. Mamma og Dagbjört stóra systir fóru nebblilega alla leið inn í borgina að fá sér kakó á kaffihúsi (og versla smá í leiðinni). Það var nú gaman að vera svona einir heima, þó ég hafi nú sofið nærri tvo tíma.
    En við vorum talsvert úti í góða veðrinu að dandalast og sáum m.a.s. tvo litla froska hoppa yfir grasið, á leið úr tjörninni í blómabeðið. Pabbi var svo snjall að hann gómaði annan froskinn og sýndi mér hann, áður en við slepptum honum aftur í tjörnina. Það búa sko allnokkrir froskar í tjörninni okkar, þar á meðal allavega einn nokkuð stór!
    25.9.2006 | 20:17

    Iss, þetta gengur ekki: hann Pabbi var að átta sig á því (seint og um síðir) að Mamma hefur ekkert uppfært dagbókina mína síðan á síðasta ári! Þess vegna bað ég hann að bæta við færslu fyrir mig:

    Nú erum við búin að búa í Leicester í Englandi í meira en mánuð. Ég er með mitt eigið herbergi og allt sona. Og mikið obboslega er nú gaman að hafa garð til að leika sér í! Ég og stóra systir erum oft að dútla úti í garði, en ég má ekki vera einn þar því ég get dottið í tjörnina okkar (aftur!! sjá albúm ágúst2006). Í dag var ég til dæmis að lesa úti með Pabba og Dagbjörtu í góða veðrinu meðan Mamma var inni lasin. Ég nennti samt ekki að lesa mikið og fór bara að keyra nýja bílinn minn (sjá albúm sept2006).
    17.9.2006 | 22:00

    Jæja ég var að koma úr 5 mánaða skoðuninni. Ég er 9.925 gr og 70 cm höfuðmálið er 46.5 cm.

    Ég hef þyngst um 900 grömm og lengst um 5 og 1/2 cm á tveim mánuðum. Sigríður hjúkrunarfræðingur sagði að það væri bara fínt. Svo sagði hún að mamma mætti alveg fara að gefa mér meira að borða,eins og t.d. grænmeti og kartöflur og svona :)

    Svo fer ég í 6 mánaða skoðun 21. des.

    Kveðja Lýdía
    16.11.2005 | 10:59

    Mamma er nú alltaf að skrifa einhverjar staðreyndir um mig í dagbókina mína, eða þannig sko. Þannig að henni finnst nú ekki mikið mál að koma með fimm staðreyndir um mig.

    nr. 1. Krútt

    nr. 2. alltaf brosandi

    nr. 3. algjör knúsikarl

    nr. 4. duglegur að velta mér á magann

    nr. 5. ákveðinn ungur maður

    Jæja núna er maður bara orðinn 5 mánaða. Mikið ótrúlega líður tíminn hratt. Ég er að fara í 5 mánaða skoðun á morgun, það verður nú gaman að vita hvað ég er orðinn stór og þungur.

    Mamma skrifar aftur á morgun

    Kveðja Ísak Árni í draumaheimum
    16.11.2005 | 00:42

    Mamma prófaði að gefa mér graut aftur í gærkvöldi. Ég hafði ekki fengið graut í tvær vikur vegna þess að ég fékk einhver útbrot eftir að mamma gaf mér nýja tegund af graut. Hún prófaði því að gefa mér aftur þennan sem hún hélt að ég hafi fengið útbrot af, og viti menn engin útbrot allavega ekki ennþá.

    Ég er orðin svo ótrúlega duglegur. Núna opna ég munninn þegar mamma er að koma með skeiðina að munninum. Reyndar reyni ég líka að ná í hana, þannig að mamma þarf að vera rosalega fljót að koma henni undan höndunum. Svo er ég á fullu að æfa mig í að drekka vatn úr stútkönnu. Mér finnst alveg ótrúlega gaman að reyna að halda á og reyna að sjúga úr henni. Mér finnst vatn mjög gott svona kalt.

    Ég er ennþá að æfa mig í því að snúa mér á bakið. Núna ligg ég bara fastur á maganum og garga þangað til einhver kemur og snýr mér við.

    Kveðja Ísak Árni
    28.10.2005 | 00:23

    Hæ allir

    Mamma er nú meir letinginn að skrifa fyrir mig. En af mér er ýmisslegt að frétta. Ég er orðin rúmlega 4ra mánaða og byrjaði um daginn að snúa mér af bakinu yfir á magann. Mamma, pabbi og Dagbjört eru náttúrulega ótrúlega stollt af mér. Alltaf þegar mamma eða pabbi setja mig á gólfið er ég komin á magan og þannig sný ég mér í hringi. Það býða allir eftir því að ég fari bara að draga mig áfram. Það þýðir ekkert lengur að leyfa mér að sprikla perrössuðum á gólfinu áður en mamma snýr sé við er ég búin að pissa á gólfið og velta mér ofaní það

    Svo er ég farin að fá pínu að borða. Það besta sem ég fæ er gúrkubiti sem er skorinn aflangur þannig að ég get sogið mjúka hlutann. Ég verð alveg brjálaður ef ég missi bitann minn. Um daginn sat mamma svo með mig og var að borða melónu, ég reyndi að sjálfsögðu að reyna að grípa í melónuna og ég varð alveg brjálaður þegar ég náði ekki í hana. Mamma lét að sjálfsögðu eftir mér og gaf mér smakk. En það sem mamma vissi ekki var að pabbi hafði gefið mér smakk af melónu deginum áður.

    Ég er nú aðeins betri við mömmu á nóttunni núna. ég vakna bara stundum á nóttunni en ekki alltaf. Aftur á móti er ég ekkert voðalega duglegur að sofa á daginn, sérstaklega ekki á fimmtudögum þegar mamma er með mig heima. En ég er rosalega duglegur að fara að sofa á kvöldin, sofna milli 20 og 21 og sef til svona 8.

    Jæja læt þetta duga í bili.

    Kveðja Ísak Árni
    23.10.2005 | 00:05

    Hæ allir

    Eitthvað hefur mamma verið löt að skrifa hérna síðan ég fæddist. En ég er semsagt orðin 3ja mánaða og 4 dögum betur. Ég fór í 3ja mánaða skoðun í morgun og fékk mína fyrstu sprautu og ég stóð mig eins og hetja. Það koma ekki einu sinni skeifa á mig þegar læknirinn minn sprautaði mig. Ég er orðin 9 kíló og 64 og 1/2 cm. Ég hef semsagt þyngst um kíló síðan í 9 vikna skoðuninni en bara lengst um rúman centimeter hún Jónina vildi nú ekki hafa áhyggjur af því.

    Ég er stundum svolítið erfiður við mömmu og vakna á nóttunni og er eitthvað að pirrast. Jónína hjúkrunarfræðingur sagði að ég væri svo stór og þyngist svo vel að ég ætti ekki að þurfa að fá að borða á nóttunni líka. En ég hef ekkert verið að vakna nema núna bara nokkrar nætur, mamma heldur reyndar að ég sé eitthvað pirraður í gómnum.

    Jæja ég læt þetta duga í bili

    Kveðja Ísak Árni

    14.9.2005 | 17:38

    About

    Færðu inn athugasemd

    Netfang þitt verður ekki birt.