TÓNLIST
by Dagbjört • 31. október 2011 • 0 Comments
2-09 Draumur um Nínu
Read more →2-09 Draumur um Nínu
Read more →Hæ allir. ég er að fara á tónleika í næstu viku til að singja með 5,000 aðra krakka. ég síng 19 lög. Þú getur hlustað á lögin á þessari síðu:
http://youngvoices.co.uk/kids/the-songs/backing-tracks/
Read more →Ljósmyndaáhugamaður kunningi minn benti mér á þessa síðu með yfir 30 stórgóðum ljósmyndum frá Íslandi, af Eyjafjallajökli sjálfum eða einhverju tengt eldgosinu: http://www.boston.com/bigpicture/2010/04/more_from_eyjafjallajokull.html
Read more →
P1000530
Originally uploaded by Mummi og Lýdía
Loksins gátum við notað sleðann okkar almennilega!! Eftir duglega ofankomu í janúar hér í Bretlandi kom nægur snjór til að renna sér í brekkum. Þar sem það er býsna flatt svæðið í kringum hverfið okkar þurftum við að bruna upp í Bradgate park til að komast í sæmilega brekku.
Þessar myndir (þar af ein vídeóupptaka) segja meira en þúsund orð. Og já, við söknum Íslands og íslenska vetursins!
http://www.flickr.com/photos/mummi-og-lydia/sets/72157623767812732/detail/
Read more →Bretar eru alveg að ganga af göflunum með öryggisráðstafanir ýmiskonar. Í þessu „barnfóstruríki“ (e. nanny state) sem við búum í um þessar mundir eru menn með gríðarmiklar áhyggjur af sundgleraugnanotkun barna.
Smá inngangur fyrst: á síðasta ári þurftum við Lýdía að kvitta fyrir um að við vildum að Dagbjört notað sundgleraugu í skólasundi, og vorum vöruð við ýmis konar hættum við notkun á slíkum tækjum. Plastið gæti brotnað og menn meitt sig á brotunum, teygjan valdið því að gleraugun skellist í augun, og fleira til. Bollocks, „health & safety“ madness sko!
Það nýjasta í þessu máli er að börnum sem taka þátt í sundhátíð hér í borg er bannað að nota sundgleraugu nema þau sýni læknisvottorð um að þau þurfi að nota glerauga af læknisástæðum. Í borgarblaðinu Leicester Mercury í dag:
Children banned from wearing swim goggles at Leicestershire leisure centre.
Youngsters were banned from wearing goggles at a swimming festival – for health and safety reasons.
Children taking part in the Aqua Splash Festival at the Hermitage Leisure Centre, in Whitwick, were told they could only wear goggles if they had a medical reason to do so.
The institute guidelines, which have been in place since 2006, state there has been a history of accidents „firstly as a result of goggles being made of glass or breakable plastics and secondly during the putting on and taking off of goggles“.
A spokesman for the institute say it encouraged children not to wear goggles – because „part of the learning to swim experience is for a child to be able to deal with splashing in the face“ – but that it was not an enforced rule.
Þessi plága er sem betur fer tiltölulega takmörkuð við starfsemi hins opinbera (t.d. skólar, bæjarfélög). Við höfum til dæmis ekki séð neitt svona í tengslum við sundnámskeið á vegum einkaaðila sem Dagbjört og Ísak sækja bæði.

P1000378
Originally uploaded by Mummi og Lýdía
Gleðileg jól öll sömul!
Hér eru örfá orð frá okkur fjölskyldunni. Við höfðum það hefðbundið á aðfangadagskvöld eins og venjulega, fjögur saman í húsinu okkar í Birchwood Close með reykt svínakjöt og hrísgrjónabúðing í eftirmat. Eftir allt pakkastandið eftir mat fóru menn örþreyttir en ánægðir í rúmið.
Ég og Lýdía ætlum að púsla saman almennilegum jólapistli yfir hátíðarnar og setja á bloggið okkar, ásamt fleiri myndum. Látum þetta í duga í bili.
Fleiri jólamyndir: http://www.flickr.com/photos/mummi-og-lydia/sets/72157622943176417/
Read more →